Heilsunudd

Hvað gerir nuddari fyrir þig?

Nudd og losunar- meðferðir

Heilsunudd vísar til fjölbreyttra nuddaðferða sem heilsunuddarar nota til að meðhöndla skjólstæðinga sína. Meðal þeirra er t.d. klassískt nudd, svæðanudd, heildrænt nudd, triggerpunktameðferð, vefjalosun, djúpvefjanudd og íþróttanudd.

Heilsunuddarar hafa því mörg verkfæri innan handar til þess að beita eftir tilvikum og hentisemi einstaklingsins. 

Heilsu-nuddari hjá Þrek

Heilsunuddari á Þrek Heilsuklíník vinnur sem hluti af teyminu okkar.

Sjúkraþjálfarar og kírópraktorar senda gjarnan skjólstæðinga sína í meðferð hjá heilsunuddara með það að marki að ná að vinna dýpra og skilvirkar á ákveðnum vandamálum í mjúkvefjum skjólstæðinga sinna.

Þessi heildræna nálgun á heilsufar skjólstæðinga okkar er eitthvað sem við finnum að virkar einkar vel og veitir fólkinu okkar mikið traust og ánægðu.

Fyrsta skiptið hjá heilsunuddara

Fyrsta skiptið hjá Heilsunuddara inniheldur spjall við meðferðaraðila, létta skoðun og markmiðaseteningu, ásamt auðvitað nuddinu sjálfu.

Eftir nuddið veitir meðferðaraðili gjarnan skjólstæðingnum ráðleggingar eða heimavinnu í takt við greiningu og markmið einstaklingsins

Endurkoma

  • Partanudd – 30 mínútna nudd þar sem heilsunuddari nuddar þann hluta líkamans sem er að valda ónotum.

 

  • Heilnudd – 60 mínútnaa nudd þar sem heilsunnuddari nuddar allan líkamann með sérstaka áherslu á þau svæði er kunna að valda ónotum.

Heilsunuddari

Diljá heilsunuddari hjá Þrek heilsuklíník

Diljá Sævarsdóttir

Diljá er menntaður heilsunuddari úr Nuddskóla Íslands þar sem hún útskrifaðist árið 2016. Hún byrjaði að vinna sem nuddari á meðan náminu stóð og hefur unnið sem slíkur, frá árinu 2016.Diljá hefur starfað sem nuddari í heilsulindum ásamt því að vera sjálfstætt starfandi. Hún sérhæfir sig í heildrænni nuddmeðferð sem er sniðin að hverjum einstaklingi fyrir sig. Diljá hefur ástríðu fyrir umönnun og leggur áherslu á vellíðan viðskiptavina.Diljá er frábær viðauki við teymið okkar á Þrek heilsuklíník þar sem samstarf heilbrigðisstétta bæði líkamlegra og andlegra er í fyrirrúmi.

Ummæli

"Ég hafði ekki getað sofið heila nótt árum saman vegna verkja í hálsi. Eftir meðferðina og holt og uppbyggjandi veganesti hef ég getað sofið eðlilega og komið mér af stað í hreyfingu. Takk fyrir mig."
- Sólrún Bjartmars
“Áður gat ég varla hreyft mig, átti erfitt með að fara fram úr rúminu, labba og bara alla daglega hreyfingu. Í dag er ég byrjuð að æfa Crossfit, get sinnt heimilinu, leikið við börnin mín og best af öllu, ég þarf ekki aðstoð við að fara fram úr rúminu. Ég mæli 150% með þessu flotta fólki sem vinnur hjá Þrek.”
- Rakel Ólafsdóttir